Sállíkamleg einkenni eru einkenni sem einstaklingur hefur en skýrast ekki af líkamlegum sjúkdómi.
Algengustu einkennin eru eftirfarandi:
- Verkir: Höfuðverkur, kviðverkir, stoðkerfisverkir
- Taugaeinkenni: T.d. máttleysi, lömun, hreyfitruflun, kyngingarerfiðleikar, flog
- Þreyta
- Svimi
- Ógleði
- Lystarleysi
Eitt einkenni eykur líkur á öðru.