Iðjuþjálfanemar hljóta 2. verðlaun í stúdentaverðlaunum Vinnís
Við viljum óska bekkjasystrum okkar, Arnþrúði, Eyrúnu og Ragnheiði innilega til hamingju með þessa viðurkenningu fyrir lokaverkefnið þeirra, “Úttekt á aðgengi að heilsugæslustöðvum í sveitarfélaginu Norðurþingi” en dómnefnd Vinnís hafði þetta um verkefnið að segja:
Afar mikilvægt rannsóknarefni þar sem bæði formlegum athugunum og eigindlegum rannsóknaraðferðum er beitt. Sá málaflokkur sem tekinn er fyrir má aldrei gleymast og að mati dómnefndar afar mikilvægar upplýsingar fyrir sveitarfélagið Norðurþing. Hagnýtt gildi verkefnisins sem og vinnuvistfræðilegt skína í gegn við gerð þess. Mjög athyglisvert verður að sjá niðurstöður verkefnisins og fylgjast með viðbrögðum við þeim.
Um leið viljum við minna lesendur á það að kynning á þessu verkefni, auk annarra lokaverkefna nemenda í iðjuþjálfun verður föstudaginn 29. maí, milli 13.00 til 16.30. Kynningin verður í stofu L101 í Sólborg, Háskólanum á Akureyri og verður hægt að horfa á kynninguna í fjarfundabúnaði í Odda í Háskóla Íslands. Dagskránna má svo skoða hér fyrir neðan.
Einnig viljum við minna iðjuþjálfa og aðra áhugasama um vinnuvistfræði að hægt er að skrá sig í Vinnuvistfræðifélag Íslands (Vinnís) en það er félag áhugafólks um vinnuvistfræði og er opið öllum sem áhuga hafa á málefninu. Viðfangsefni vinnuvistfræðinnar er samspil mannsins og þess umhverfis sem hann lifir og starfar í, þar sem þarfir, vellíðan og öryggi fólks eru í fyrirrúmi, eins og segir á heimasíðu félagsins.
Popularity: 12% [?]


