RSS-veita
17.4.2009   | Hrefna

10 ráð til efla samskipti við skjólstæðinga

Það er að mörgu að huga þegar mynda á samband við nýjan skjólstæðing. Eftirfarandi 10 atriði um hverju huga þarf að til að efla samskipti við skjólstæðinga, má finna í blaðinu Occupational therapy ADVANCE, en sérstök  nemendaútgáfa blaðsins var gefin út þann 9 mars sl.  Þó svo að það sé mikilvægt að huga að því sem sagt er, þarf jafnframt að gæta að því hvernig hlutirnir eru settir fram og hvað líkamstjáning þín segir um þig….

 

1.      Kynntu þig. Þegar þú hittir skjólstæðingi í fyrsta skipti, heilsaðu honum/henni með nafni, myndaðu augnsamband og kynntu þig með nafni og starfsheiti.  Skjólstæðingar þurfa að vita hvort þú ert læknir, hjúkrunarfræðingur, sjúkraþjálfari, iðjuþjálfi, nemi, næringarfræðingur osfrv. Hvernig þú kynnir sjálfan þig, gefur til kynna hvaða augum þú sérð þig og skjólstæðing þinn.

2.      Hlustaðu á skjólstæðinginn. Fylgstu náið með skjólstæðingnum, bæði hvað hann segir og hvað hann gerir. Skjólstæðingurinn gefur alltaf upp ákveðnar upplýsingar með líkams- og andlitstjáningu. Gættu þess einnig að grípa ekki fram fyrir því sem skjólstæðingurinn segir og trufla hann. Ef skjólstæðingi finnst vera hlustað á sig, er auðveldara að byggja upp traust og að farið verði eftir þeim ráðleggingum sem settar eru fram.

3.      Forðastu að nota fagorð. Fagorð geta verið ruglingsleg og illskiljanleg fyrir skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra. Notaðu skýr og skiljanleg orð þegar verið er að útskýra ákveðið ferli, ráðleggingar, greiningar, íhlutanir o.s.frv. Ef fagorð eru notuð, er mikilvægt að útskýra þýðingu þeirra. Gott er að biðja skjólstæðinga og/eða ættingja að endurtaka þær upplýsingar eða ráðleggingar sem verið var að setja fram, svo öruggt sé að viðkomandi hafi skilið það sem sagt var. 

4.      Talaðu skýrt. Ef talað er mjög hratt eða óskýrt getur það truflað samskiptin. Það þarf einnig að huga að því að nota viðeigandi orð og að setningarnar séu ekki of langar eða flóknar. Þegar verið er að vísa fólki áfram á nýja staði, á nýja fagaðila eða í ný meðferðarúrræði, er mikilvægt að vera skýr, þannig að skjólstæðingar viti hvert þeir eru að fara og af hverju.

5.      Settu fram skriflegar leiðbeiningar/útskýringar. Skjólstæðingar og ættingjar þurfa oft að meðtaka miklar upplýsingar í einu og því er algengt að þeir gleymi oft einhverjum leiðbeiningum eða útskýringum sem settar voru fram í viðtalinu. Það er því mikilvægt að þessi atriði séu sett á blað svo að meiri líkur séu á að skilningur aukist eða að farið sé eftir því sem lagt var upp með í viðtali.

6.      Komdu fram við skjólstæðinginn og ættingja hans af virðingu og vinsemd. Það er mjög erfitt að breyta fyrstu áhrifunum sem við höfum á fólk, hvort sem þau eru jákvæð eða neikvæð. Neikvæð samskipti milli skjólstæðings og fagaðila geta spillt mikið fyrir áhrifum meðferðar eða íhlutunar.

7.      Talaðu beint við skjólstæðinginn. Margir eldri skjólstæðingar koma með ættingja með sér í viðtöl og þá er mikilvægt að hafa í huga hver skjólstæðingurinn er. Það er afar brýnt að hafa skjólstæðinginn með í samræðum þegar verið er að búa til íhlutunarplan sem hann þarf svo að fylgja. Vegna þess hve heyrnarskerðing er algeng hjá eldra fólki, er mikilvægt að hafa í huga að horfa beint á skjólstæðinginn þegar þú talar.

8.      Gættu að faglegum vinnubrögðum. Eins augljóst og þetta atriði nú annars er, þá er mikilvægt að hafa í huga að skammir og rifrildi við aðra fagaðila, við nema eða aðstoðarfólk ætti aldrei að fara fram fyrir framan skjólstæðinga og ættingja þeirra. Þetta getur haft mikil áhrif á traust þeirra til heilbrigðisstarfsfólks og starfseminnar og haft neikvæð áhrif á útkomu íhlutunarinnar.

9.       Gættu vel að trúnaði Mikilvægt er að gæta að því hvar viðkvæmar upplýsingar eru ræddar, því ef skjólstæðingar heyra rætt um aðra skjólstæðinga er hætta á að þeir séu ekki tilbúnir að ræða sín viðkvæmu mál.

10.  Hugaðu að mismunandi menningu. Hver og ein menning hefur mismunandi gildi og viðhorf gagnvart samskiptum, yfirvöldum, ákvarðanatökum, hreinlæti, næringu, lyfjum, veikindum og ákvörðunum varðandi sjúkdóma og dauða. Líkamstjáning, hæfileg fjarlægð milli einstaklinga og snerting geta einnig verið mismunandi. Margar heimildir eru til um siði og venjur mismunandi menningarheima á netinu til þess að fræða heilbrigðisstarfsfólk, leitaðu eftir þessum upplýsingum.

 

Popularity: 14% [?]

Upplýsingar um færslu

© www.idjuthjalfun.is