RSS-veita
9.3.2009   | Hrefna

Besta starf í heimi?

Samkvæmt US news & world er  iðjuþjálfastarfið eitt af 30 bestu starfsferlum sem menn geta lagt fyrir sig á þessu ári og er þetta í annað skiptið í röð sem iðjuþjálfastarfið hlýtur þennan heiður. Árlega velur blaðið úr hundruðum starfa á þennan lista og eru viðmiðin starfsframi, almenn starfsánægja, erfiðleikastig námsins, orðstýr og laun. Þess má geta að af þessum 30 störfum eru 12 þeirra á heilbrigðissviði.

 Miðað við gengið í dag eru meðal árslaun iðjuþjálfa í Bandaríkjunum um 7.200.000 en ef miðað er við gengi fyrir ári síðan eru árslaunin um 4.200.000.  Ef miðaðar eru tölur frá KOS þá er það nokkuð svipað meðal árslaunum íslenskra iðjuþjálfa sem voru árið 2007 um 4.300.000.

Starfsánægja fær B einkun en gefin er einkun frá A – D þar sem viðmiðið er hversum miklum tíma fagaðili ver í hluti sem eru að hans áliti ánægjuleg eða gefandi. Á Íslandi er ekki til mikið af upplýsingum um starfsánægju meðal iðjuþjálfa en það væri almennt gaman ef könnun yrði gerð meðal iðjuþjálfa um hvort þeim finnist almennt starfið vera ánægjulegt og/eða gefandi.

Erfiðleikastig námsins fær líka B í einkun en hér er einnig gefin einkunn frá A – D. Viðmiðið er lengd náms og einnig hversu mörg raungreina- og/eða stærðfræðiáfanga eru í náminu. Þess má geta að nýlega var farið að krefjast meistaragráðu við störf iðjuþjálfa í Bandaríkjunum sem lengir töluvert nám þeirra nokkuð miðað við stöðu mála hér á landi, þar sem krafist er BS prófs.

Orðstýr fær B - einkunn og er metin út frá óformlegri könnun meðal háskólamenntaðra einstaklinga.

Möguleikar á starfsframa fær A – einkunn og er metin af upplýsingum frá Vinnumálastofnun Bandaríkjanna og ýmissa fagsamtaka

US news & world segir iðjuþjálfun jafnframt vera ögrandi starf sem henti best skapandi og hagsýnum einstaklingum sem finna ánægju við litla sigra.

 Umfjöllun á Youtube um greinina

Í október sl. kom svo út bókin 150 Best Recession-Proof Jobs eftir Laurence Shatkin.  Titilinn á bókinni má lauslega þýða sem 150 bestu en jafnframt öruggustu störfin í kreppunni en í henni skorar iðjuþjálfastarfið á nokkrum sviðum:

#Iðjuþjálfun er í 18 sæti yfir 150 bestu, öruggustu störfin í kreppunni.
#Aðstoðarmaður iðjuþjálfa er í 72 sæti yfir 150 bestu, öruggustu störfin í kreppunni.
#Iðjuþjálfun er í 35 sæti yfir bestu, öruggustu  launuðu störfin í kreppunni
#Aðstoðarmaður iðjuþjálfa er í 24 sæti af 50 yfir þau störf sem eru í hröðustum vexti í kreppunni.
#Iðjuþjálfar eru í 41sæti af 50 yfir þau störf sem eru í hröðustum vexti í kreppunni.
#Aðstoðarmaður iðjuþjálfa er í 74 sæti af þeim störfum sem eru með hæsta hlutfall starfsmanna sem eru 55 ára og eldri í kreppunni

Þá er bara að sjá hvort staða iðjuþjálfa á Íslandi taki ekki stór skref í kreppunni hérna á Íslandi.

Popularity: 23% [?]

Upplýsingar um færslu

Flokkar: Greinar

Tags:

Um höfund:

© www.idjuthjalfun.is