RSS-veita
20.12.2008   | Ritstjórn

Um leið og við óskum ykkur gleðilegra jóla…

free-christmas-light-screensaver

…og farsældar á komandi ári, viljum við benda ykkur á grein eftir Steindór J. Erlingsson sem birtist í Fréttablaðinu þann 19. desember en þar þakkar hann Elínu Ebbu Ásmundsdóttur og Auði Axelsdóttur í Hlutverkasetrinu fyrir að hafa kennt sér að snúa geðveiki sinni í gæfuspor fyrir sig og aðra.

Þessi síða okkar mun áfram verða í vinnslu á næsta ári og eru allar ábendingar um efni vel þegnar, en stefnt verður að því að koma síðunni betur á framfæri þegar nær dregur vori. Við munum halda áfram í baráttu okkar fyrir því að gera iðjuþjálfun meira sýnilega í samfélaginu og hampa einstaklingum fyrir vel unnin störf.

Popularity: 32% [?]

Upplýsingar um færslu

Flokkar: Fréttir

Um höfund: Ritstjórn skipa nemendur á 4. ári í iðjuþjálfun 2008-2009

© www.idjuthjalfun.is