RSS-veita
30.11.2008   | Ritstjórn

Ritstjórnarpistill

Kæri lesandi

Vertu hjartanlega velkominn á heimasíðuna okkar!

Þessi heimasíða var sett á laggirnar með það fyrir augum að kynna iðjuþjálfafagið.

Hugmyndin á bak við síðuna er að auðvelda aðgang að upplýsingum um iðjuþjálfun. Ennfremur viljum við með þessum hætti tengja iðjuþjálfunarnámið og starfið betur saman.

Mikil óbeisluð orka býr í metnaðarfullum nemum sem við vildum nýta til þessarar markaðssetningar. Til þess ætlum við að gera sýnilega þá miklu vinnu sem við höfum unnið í tengslum við fagið á undanförnum fjórum árum. Dæmi um annað efni sem er á síðunni eru upplýsingar frá starfandi iðjuþjálfum og ýmsir nytsamlegir tenglar. Á síðunni eru fjölbreyttar upplýsingar sem bæði almenningur sem og fagfólk getur nýtt sér.

Á komandi mánuðum stefnum við að því að styrkja síðuna enn frekar með fjölbreyttu efni og eru allar ábendingar því tengdu vel þegnar.

Að lokum viljum við þakka:

  • Elínu Ebbu Ásmundsdóttur fyrir að trúa á þann eldmóð sem í okkur býr
  • Iðjuþjálfafélagi Íslands og iðjuþjálfunarbraut Háskólans á Akureyri fyrir stuðning og sveigjanleika

Við vonum að þessi síða muni gagnast þér nú sem og í framtíðinni

Jólakveðja
Ritstjórn
(Ritstjórn skipa útskriftanemar 2009 í Iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri)
30. nóvember 2008.

Popularity: 42% [?]

Upplýsingar um færslu

Flokkar: FréttirGreinarÁhugavert

Um höfund: Ritstjórn skipa nemendur á 4. ári í iðjuþjálfun 2008-2009

© www.idjuthjalfun.is