Hvað er iðjuþjálfun?
Það eru margir sem vita ekki hvað iðjuþjálfun er, meira að segja einstaklingar sem eru að byrja nám í iðjuþjálfun eru ráðvilltir í fyrstu. Þess vegna höfum við ákveðið að setja saman stuttan texta til að auðvelda lesendum að gera sér grein fyrir út á hvað iðjuþjálfun gengur.
Iðjuþjálfun er fjölbreytt og vaxandi starfsgrein, starfstækifærin verða fleiri og starfsvettvangurinn breiðari nánast með hverjum mánuðinum og möguleikarnir því nánast óþrjótandi. Starf iðjuþjálfa er mjög mismunandi eftir því hvar þeir vinna, aldur einstaklinga sem þeir vinna með, skerðing einstaklingsins og að hverju þjónusta iðjuþjálfans beinist.
Í gruninn gengur iðjuþjálfun út á að styðja, leiðbeina, ráðleggja, fræða og kenna fólki að takast á við daglegt líf. Undir þetta getur fallið að styðja fólki við að takast á við athafnir sem því langar til að framkvæma, þarf að framkvæma eða ætlast er til að það framkvæmi. Þessar athafnir geta fallið undir hversdagslífið, vinnuna, áhugamál eða heimilislíf og geta hindranir búið í einstaklingnum sjálfum eða umhverfinu.
Helsta hlutverk iðjuþjálfans er að styrkja einstaklingin og jafnvel einnig hans nánustu. Til að geta sinnt þessu hlutverki sem skyldi þá þarf iðjuþjálfinn að búa yfir góðri þekkingu á starfsemi mannslíkamans og uppbyggingu, félagsfræði, sálfræði og þroskaferli mannsins.
Iðjuþjálfar geta starfað einir, í samvinnu með öðrum iðjuþjálfum eða í þverfaglegu samstarfi við aðrar fagstéttir t.d. félagsráðgjöfum, sálfræðingum, kennurum, þroskaþjálfum, sjúkraþjálfum, hjúkrunarfræðingum og læknum.
Eins og áður segir er starfsvettvangur iðjuþjálfa afar fjölbreyttur. Þeir starfa t.a.m. á geðsviði, við endurhæfingu, í skólum, á öldrunarsviði, á heilbrigðisstofnunum og heilsugæslustöðvum, við vinnuvistfræði, inn í einkafyrirtækjum, við úthlutun hjálpartækja og hjá sveitarfélögum.
Nánari upplýsingar:
- Iðjuþjálfafélag Íslands
- Háskólinn á Akureyri – Iðjuþjálfun
- Saga iðjuþjálfafélagsins
- Reynslusögur iðjuþjálfa
Popularity: 57% [?]

