RSS-veita
22.11.2008   | Ritstjórn

Um námið

Iðjuþjálfunarnámið er mjög fjölbreytt. Það sameinar iðjuvísindi, hug- og félagsvísindi, heildbrigðisvísindi og raunvísindi. Starfsmöguleikar að námi loknu er því að sama skapi mjög fjölbreyttir.

“Síðastliðin fjögur ár hafa verið ánægjuleg, áhugaverð, lærdómsrík og á sama tíma krefjandi. Þau munu vafalaust nýtast mér og móta í fram­ tíðinni sem iðjuþjálfi. Bæði námið og umhverfið hafa þroskað mig sem einstakling. Ég er farin að setja upp „iðjugleraugun” og horfi í gegnum þau með aðra sýn á heiminn. Þetta hefur verið skemmt ilegt ferðalag frá fyrsta degi og gott tækifæri til að kynnast frábærum bekkjarfélögum sem er að mínu mati mikilvægur þáttur til að ná árangri og að upplifa gott nám. Ég horfi fram á veginn með tilhlökkun og spenningi fyrir að fara út í samfélagið og takast á við starfið sem iðjuþjálfi, miðla reynslu minni og þekkingu til annarra og fá tækifæri til að þroskast sem fagmaður.”

Björg Jónína Gunnarsdóttir

4.árs nemi í iðjuþjálfun

Frekari upplýsingar um námið má finna á heimasíðu Háskólans á Akureyri.

Popularity: 34% [?]

Upplýsingar um færslu

Flokkar: GreinarÁhugavert

Um höfund: Ritstjórn skipa nemendur á 4. ári í iðjuþjálfun 2008-2009

© www.idjuthjalfun.is